Gilberto

Hæts

24.08.2009 12:50:13 / gilberto

Menning er ekki allra !

Ég skellti mér í menningarkápuna um helgina og fór niður í bæ með ömmu.  Við fórum í Goðagöngu meðal annars sem var nokkuð skemmtileg en þar fór Birna Þórðardóttir(held hún heiti það) á kostum og sagði frá götum og goðum í "Goðahverfinu".  Að því loknu gengum við amma eins og óð um bæinn og minntum helst á Reyni Pétur hér umárið. 


En á vegin okkar varð ýmislegt allt frá vonlausum rappara yfir í gjörsamlega glataða list en við enduðum menningargöngu okkar á Listasafni Reykjavíkur.  Þar mátti finna ýmislegt og reyndi ég eftir fremsta megni að hlægja ekki af því drasli sem var til sýnis,  Erró sýningin var reyndar mjög flott en restin ............ gubb.......sem telst svo sem til lista !

http://www.gkm.se/erro/0601/400/erro-portrett2.jpg



Ekki var stemmari í okkur ömmu að bíða eftir flugeldum þannig að við fórum heim og horfðum á TV.

Það var merkilega gaman síðasta miðvikudag því þá sigraði Liverpool sinn fyrsta leik þetta tímabilið og vonandi verða þeir margir fleiri á komandi tímabili.  Það er leikur í kvöld gegn Aston Villa sem vonandi vinnst en ég er þó hóflega bjartsýnn og leyfi mér ekki að spá........væri fínt ef Óskar Atli myndi spá eins og síðast....en hann spáði 4-0 sigri sem reyndin varð....svona nú spáðu litli spánverji  :)

Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst á morgun hjá mér......líst vel á það........kannski að það komist einhvert skipulag á líf manns aftur eftir mjög svo letilegt sumar hjá mér.....ekki laust við að buxnastrengurinn sé farinn að herða að !!.....hvað áttu við !!! ?  8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.08.2009 16:13:35 / gilberto

H1N1 og þetta helsta

Nú þegar allir eru hættir að kíkja við á síðuna hjá Gillanum er ekki úr vegi að blogga svolítið.  Gillinn hefur verið meira og minna lasinn síðan 11. júlí og er það farið með andlega heilsu hans en óstafestar heimildir eru fyrir því að ekki sé um grislingana að ræða.  

Kennsla hefst í næstu viku á nýjan leik og er ég ekki frá því að ég taki því fagnandi en ég hef verið að drekka kaffi og þetta helsta síðustu daga til að undirbúa kensluna.

Mínir menn í Liverpool halda áfram að gera mikla skráveifu á andlega heilsu mína með meðalmesnkubrjálæði.....nú síðast var big NOname signing hjá þeim....hin 30 ára gamli varnarmður sem ber nafnið Kyrgiakos en eins og nafnið ber til kynna er hann grískur og þar að auki með sítt hár sem þýðir aðeins eitt ...............hann getur ekkert hjá Liverpool......Það hefur engum síðhærðum manni tekist vel hjá þeim rauðklæddu í Bítlabænum.......en Patrik Berger kemst næst því að hafa getað eitthvað með sítt hár hjá þeim.

http://www.wsoccer.com/players/b/berger_patrik/berger4.jpg

Nú er leikur í kvöld gegn liði Stoke en ekki tókst Liverpool mönnum að koma boltanum í netið hjá þeim síðasta vetur þrátt fyrir 43 marktækifæri á 180 mínútum gegn þeim.  Ég hef tekið ákvörðun að horfa ekki á leikinn svona svo ég geti sofnað.

Annars er allt gott að frétta !

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2009 12:52:45 / gilberto

Bloggið hættir ekki !

Þau gleðitíðindi bárust af stjórnarfundi gilberto bloggsins að áfram yrði bloggað á síðunni.
http://www.peoplespressnews.com/blog/images/happy-face.gif

Einnig hafa fregnir borist að því að nýr ritstjóri hafi verið ráðinn en þær fréttir hafa ekki verið staðfestar.

Fylgist með..........


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2009 18:37:13 / gilberto

Prodigy klikka ekki !!!


» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 43398
Könnun
Ertu ánægð/ur með að gilberto bloggið muni halda áfram ?


Snillingar að austan